|
Search Lyrics Database:
Nydonsk Styr Lyrics
Print Nydonsk Styr Lyrics
Sören, Palle, Knud og jeg stofnuðum hljómsveit. Það var þykkni og þoka á Þykkvabæjaströndum á kvöldin. Með páku og poka og þriggjahljómaþrígrip að þeysa á kartöfluslóðir við sveitunga svera að keppa. Í kapphlaupi við tímann og klukkuna á Hvoli við keyrðum. Í leynimúla við lokkandi ljósamynstur. :,: Splæst var á línuna sóda-poppi og pylsum :,: Viðlag: Strákarnir stofnuðu hljómsveit. Þeir gengu bar' allt of langt. Á leiðinni miðri mótormaskínan mæddist nú þykkbotna skó á brauðfætur fast voru bundnir. Gengum hvar Göngu-Hrólfur hrasaði forðum og séra Þangbrandur þrumaði í krossfara kristnum orðum. Viðlag... Snögglega snældunni snérum við snarlega við í fimbulfögrum fjallasal við sáum hvar Rúnar rösklega með rafmagnsgígjuna reið og beljandi bassinn og tromman frá Bárðadal bárust. Viðlag...
|